Price Comparison Results
Set studio
Host Contact Options
Upgrade your account to access host contact information.
Get better deals with direct booking options.
Set er björt og hlýleg studio íbúð á fyrstu hæð með þrem stökum rúmum sem hægt er að færa saman. Í íbúðinni er eldhúseining ásamt öllu sem þarf til einfaldrar eldunar, baðherbergi með sturtu og notalegum hita í gólfi. Út um glugga og frá palli er útsýni niður að Lagarfljóti og yfir græna grund. Bílastæði rétt utan við dyrnar og gott aðgengi að íbúðinni. Set er á neðri hæð í eldra húsi, tvær aðrar íbúðir eru í húsinu og biðjum við fólk að hafa hljótt eftir kl 10 á kvöldin ef aðstæður leyfa. Þar sem þetta er gamalt hús þá biðjum við fólk að ganga um með virðingu. Við viljum biðja ykkur um að vaska upp, þurrka og ganga frá því sem þið notið í eldhúsinu. Lykilinn skiljið þið svo eftir í hurðinni þegar þið farið. Vinsamlegast gangið ekki um á útiskóm inni. Við á Setbergi viljum helst geta tekið á móti gestum okkar, svo endilega látið okkur vita ekki seinna en að morgun komudags um áætlaðan komutíma eða látið okkur vita ef þið viljið senda okkur skilaboð um klst fyrir komu. Ef við getum ekki tekið móti ykkur þá sendum við ykkur skilaboð. Ef þið hafið áhuga á morgunverði þá er hann til sölu á Bókakaffi 5 km frá Setbergi. Verð og aðrar upplýsingar eru í möppu í íbúðinni og á heimasíðu Bókakaffis. Pantanir þurfa að berast fyrir kl 22:00. Á Setbergi er blandað bú, kindur, kartöfluræktun, þökusala, skógrækt og ýmiskonar tækjavinna. Því getur verið ónæði af þessu á álagstímum en við reynum eftir fremsta megni að hafa hljótt. Getum að vísu ekki stjórnað jarminu í kindunum en það er aðallega að vori og hausti til. Við, Agnes og Helgi, eigum tvö börn á unglingsaldri sem aðstoða stundum við móttöku gesta og annað hér heima. Á staðnum eru tveir forvitnir og hressir hundar og tveir forvitnir kettir. Ef þið eruð með ofnæmi eða líkar almennt ekki vel við hunda og ketti, vinsamlegast takið það fram og við gerum okkar besta við það að halda þeim inni. Við tökum alltaf vel í það að sýna ykkur bæinn og búskapinn sem við stundum. Á vorin er hægt að skoða lömbin og hoppa á trampólíninu. Við erum tilbúin að svara spurningum ykkar eins og hægt er. Við búum í næsta húsi og það má alltaf banka upp á, í flestum tilfellum er einhver heima. Við búum í dreifbýli og það erum rúmir 4km í Fellabæ. Við mælum með því að njóta smábæjarstemmingarinnar og kíkja á kökuhlaðborð á Bókakaffi, sund í Egilsstaðasundlaug og ganga sem flestar gönguleiðir.
Amenities
Safety
Community Book-Direct Links
Reviews
Location
Iceland · EgilsstaðirGot questions?
We are eager to hear from you whether you need to contact our support team, speak with our founders, or simply want to say hello.