Price Comparison Results
Gestshús
Gestshús er bjart og hlýlegt sumarhús með hjónarúmi og einu stöku rúmi. Í húsinu er eldhúseining ásamt öllu sem þarf til einfaldrar eldunar, baðherbergi með sturtu og gullfallegt útsýni niður að Lagarfljóti. Bílastæði er rétt utan við dyrnar og gott aðgengi að húsinu. Gestshús er tilvalið í slökun frá borginni og við mælum með að setjast á pallinn með kaffibolla, góða bók og njóta. Við erum að vinna í því að breyta og bæta, húsið verður bráðlega uppfært. Við á Setbergi viljum helst geta tekið á móti gestum okkar, svo endilega látið okkur vita ekki seinna en að morgni komudags um áætlaðan komutíma eða látið okkur vita ef þið viljið senda okkur skilaboð um klukkustund fyrir komu. Ef við getum ekki tekið móti ykkur þá sendum við ykkur skilaboð. Húsið var reist og nefnt eftir fallegri sál sem við misstum frá okkur, því biðjum við ykkur um að ganga um það með virðingu. Við viljum biðja ykkur um að vaska upp, þurrka og ganga frá því sem þið notið í eldhúsinu áður en þið farið. Lykilinn skiljið þið svo eftir í hurðinni þegar þið farið. Vinsamlegast gangið ekki um á útiskóm inni. Ef þið hafið áhuga á morgunverði þá er hann til sölu á Bókakaffi 5 km frá Setbergi. Verð og aðrar upplýsingar eru í möppu í íbúðinni og á heimasíðu Bókakaffis. Pantanir þurfa að berast fyrir kl 22:00. Á Setbergi er blandað bú, kindur, kartöfluræktun, þökusala, skógrækt og ýmiskonar tækjavinna. Því getur verið ónæði af þessu á álagstímum en við reynum eftir fremsta megni að hafa hljótt. Getum að vísu ekki stjórnað jarminu í kindunum en það er aðallega að vori og hausti til. Við, Agnes og Helgi, eigum tvö börn á unglingsaldri sem aðstoða stundum við móttöku gesta og annað hér heima. Á staðnum eru tveir forvitnir og hressir hundar og tveir forvitnir kettir. Ef þið eruð með ofnæmi eða líkar almennt ekki vel við hunda og ketti, vinsamlegast takið það fram og við gerum okkar besta við það að halda þeim inni. Við tökum alltaf vel í það að sýna ykkur bæinn og búskapinn sem við stundum. Á vorin er hægt að skoða lömbin og hoppa á trampólíninu. Við erum tilbúin að svara spurningum ykkar eins og hægt er. Við búum í næsta húsi og það má alltaf banka upp á, í flestum tilfellum er einhver heima. Við búum í dreifbýli og það erum rúmir 4km í Fellabæ. Við mælum með því að njóta smábæjarstemmingarinnar og kíkja á kökuhlaðborð á Bókakaffi, sund í Egilsstaðasundlaug og ganga sem flestar gönguleiðir.
Amenities
Safety
Community Book-Direct Links
Reviews
Location
Iceland · Jerusalem District · EgilsstaðirGot questions?
We are eager to hear from you whether you need to contact our support team, speak with our founders, or simply want to say hello.